Spáin fyrir boltann og rétt úrslit

Bolton - Liverpool: spáði 1-0, fór 2-0. Nokkuð nálægt, sáttur hér

Charlton - Arsenal: spáði 0-3, fór 1-2. Jæja, 3 mörk, vitlaust skipt.

Chelsea - Aston Villa: Spáði 1-0, fór 1-1. Ekki haft jafn gaman að því að hafa rangt fyrir mér í langan tíma!

Everton - Manchester City: Spáði 2-0, fór 1-1. City jafnaði tveim dögum eftir leik, bara svindl.

Sheffield United - Middlesbrough: Spáði 2-2, fór... horfði einhver á þetta?? hmm... augnablik... 2-1! Og nóg sagt um þennan leik.

West Ham - Reading: Spáði 2-1, fór 0-1. Verst Ham er bara í flórnum, hættur að giska á þá!

Blackburn - Wigan: Spáði 1-1, fór 2-1. Nálægt, annað markið var rangstaða (skilst mér) þannig að þetta stóðst, er þaggi?

Manchester United - Newcastle: spáði 3-0, fór 2-0. Hefði haft þetta rétt ef ronaldo væri ekki svona fjandi illa við markramman! hvað er málið? 3 skot í ramman??

Tottenham - Portsmouth: spáði 2-1, fór 2-1. Loksins hárrétt... erfiðir leikir þessa helgina!

Watford - Fulham í kvöld, hann fer 2-0 og ekkert rugl takk!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

elskan... Rammi með ákveðnum greini er skrifað með 2 n-um... = rammiNN.

ég er nöldrari...

Þórdís Inga Þórarinsdóttir (IP-tala skráð) 2.10.2006 kl. 17:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband